Hringi tími
Ég er inni í smá stumd um kl.16 (flesta daga)
Ég er komin inn úr fjósi um kl.20.30 (ef ekkert kemur uppá)
Ég er nánast alltaf með gemsann í vasanum
(það er bara ekki samband allstaðar)
Ég er EKKI með gemsan á meðan ég er að mjólka
og það er frá kl 6-9 og 17-20.30
Hlakka til að heyra frá ykkur , er allt of ódugleg að setjast
niður og hringja ég veit það en það er alltaf gaman að heyra
frá ykkur.
loveya kv, xxx
Hér er ég
Búskapurinn í lukkunar velstandi
allt gengur að óskum, og allt eins og bezt verður á kosið
nú er ég ein inni svo að ég ákvað að líta aðeins á síðuna mína
Árni er úti að vinna, það var ágætis veður rétt áðan, svolítið hvasst,
núna heyri ég varla hvað ég hugsa því að það er berjandi sliddu haggl á rúðunum.
Stelpurnar eru í afmæli, fóru í gær og koma heim í dag.
Hef nú lítið annað að segja heyri yfirleitt ekki í neinum svo að
ekki heyri ég kjaftasögurnar
Sé ekki fréttir því að þær eru á fjósatíma og þó að við tökum þær upp þá
vinnst ekki tími til að horfa á þær, svo að maður fylgist ekki mikið með.
var að uppgötva að það er alveg rosalega stutt í jólin og ég sem er
yfirleitt búin í öllum jólainkaupum á þessum tíma , er ekki byrjuð.
svo er ég víst líka með fermingu í vor og núna rétt um dagin kom í
ljós að hún er mun fyrr en við héldum þar sem hvítasunnan er núna
11. maí svo að eitthvað þarf víst að fara að huga að því.
vona að allir hafi það gott og komi til með að kíkja í smá veislu hjá okkur 11.maí
love´ya all , xxx
sveitasæla
Allt gengur samkvæmt áætlun og gott betur en það
Við erum loks komin með nokkuð stapíla nettengingu
hér er að vísu ekkert ADSL en við höfum ISDN-plús
það er nú svo skondið að ef þú hefur kost á ADSL þá færðu allan
búnað hjá símanum frítt, að vísu er allt draslið eign símans en hvað með það,
svo er bara fastagjald á mánuði og visst mikið innifalið, gott mál
svo ef a þú álpast nú til að búa þar sem þú hefur ekki kost á öðru en ISDN
þá þarf að kaupa búnaðinn á 15.000 kr borga mánaðargjald tengingar og svo
fyrir innifalið magn , SANNGJARNT, held ekki og svo er alltaf rosa mál að fá
tölvurnar til að sammþykja ISDN-ið
hvað er eiginlega í gangi með Símann?? við tilkyntum fluttning á númerinu og sögðum upp ADSL-inu og Skjánum....ekkert mál þeir lokuðu fyrir heimasíman
og tóku út netið og sjónvarpið samdægurs
svo rukkuðu þeir okkur fyrir sjónvarpið mánuðinn eftir þó að það sé engin möguleiki að vera með það nema að vera tengdur ADSL rukkuðu fyrir ISDN-ið þó að sú tenging hafi ekki verið komin í gagnið vegna þess að þeir afhenntu okkur rangan búnað og svo bara svona til að fullkomna allt þá erum við með farsímalás á heimasímanum og borgum 90 kr á mánuði fyrir það en lásinn hefur ekki virkað síðan við fluttum og hvernig er hægt að rukka á sama reikning:
farsímalás á heimasíma 90 kr
símtöl í farsíma 10 stk 1350 kr
bara bull
jæja þá er það frá
að allt öðru
við keyptum okkur fjórhjól rosa vinnu græja
700 kúbik dísel sjálfskipt fjórhjóladrifið
léttir manni ýmislegt engin vafi
kýrnar eru búnar að vera að bera á fullu undanfarið
erum ekki alveg sátt við kynja hlutfallið hjá kálfunum
af 18 beljum bornum eru komnar 4 kvígur og 14 bolar
og þar sem að við seljum alla bola en eigum kvígurnar
er ekki mikið komið í kálfa húsið a.m.k ekki í bili
hér er allt að skrælna við höfum aldrey vitað annað eins
í allt sumar eru búnar að koma tvær rigningadembur
önnur stóð í einn klukkutíma og hin í tvo
jörðin er öll sprungin eins og maður sá í gömlu vestrunum
ef að maður eða hundur gengur eftir túni þá rykar upp undan fótunum
það er alltaf mold í augum og nefi
FURÐULEGT
í fyrra sumar ringdi að vísu líka bara tvisvar hér
önnur demban tók yfir fyrrihluta sumars og hin þann seinni
Það er alveg svakalega mikið af berjum
bilun, allir að koma í berjamó
ég er búin að sulta úr 3,5 kílóum
og læt það bara duga í bili
tvö tamin hross komin heim svo að aðeins er verið að fara á bak
æfa fyrir Laufskálarétt sem er síðustu
helgina í september,
allir að koma þá og skella sér í hrossaréttir og á ball
í reiðhöllinni
þið frænkur mínar sem eruð búnar að boða komu ykkar
eruði ekki að fara að koma eða á ég að senda út leitarflokk
jæja meira seinna endilega kvittiði fyrir svo að ég viti af ykkur
sveitó kveðjur úr menningunni love, xxx
Flutt
það er rosalega tæpt netsamband svona í bili svo
að þetta verður bara voða stutt en ég bæti það upp seinna
Húsið selt og allt eins og bezt verður á kosið.
Meira seinna , kv, xxx
Halló
við settum 18,7 á það
en tilboðið hljóðar upp á 18,2
ekki slæmt
svo vonum við bara að allt gangi upp
læt ykkur vita
kv, xxx
Eru ekki allir í sumarskapi
svona er þetta nú, annað hvort rignir endalaust, svo að allir
eru að drukkna eða það rignir bara ekki neitt vikum saman og allt skrælnar.
Við erum langt komin með glugga og glerjun í Viðbót, það þarf að vísu líka að skipta um nokkrar rúður í húsinu vegna móðu, en það er nú ekki mikið mál þ.e. ef að smiðurinn getur verið eitthvað heima
Hann var fyrir norðan nú um helgina er á leið heim bara akkúrat núna
Ætli við verðum ekki komin norður upp úr miðjum júní ég yrði ekki hissa
þegar búið er að klára Viðbót er hægt að fá fasteignamat á hana og þá er hægt a setja á sölu og vonandi gengur salan fljótt og vel og þá er þetta allt klárt
Stefán er búin að kaupa á Króknum og flytur inn þar um 1. júní, svo að þá er annað húsið laust og við getum farið að koma okkur fyrir þar til bráðabirgða því að svo flyjum við yfir í hitt húsið einhvern tíman eftir að tengdó flytja í nýja husið þeirra
jæja nóg um það, nú er ég farin að hugsa og bulla í hringi svo að best er að hætta í bili og koma einhverju skikki á þetta allt saman og þá get ég bloggað aftur
elskið friðin og verið ljúf og góð og njótið rigningarinnar, kv,xxx
Sveitakellingin ég.....
Jæja þá er að fara að huga að flutningum eina ferðina enn
Við ætlum að flytja norður í land í sumar, líklega í ágúst
Við erum að fara að kaupa jörðina sem tengdaforeldrar mínir búa á
Jörðin er búin að vera í fjölskyldu Árna í yfir 100 ár
Þar er rekið meðal stórt kúabú, 52-54 kýr
Stelpurnar munu fara í skóla í Hofsós
Við verðum líka með nokkur hross, nokkrar kindur, hænur og endur
svo að sjálfsögðu Töru og Prímu
Jörðin er rétt hjá Hólum í Hjaltadal
Jibbbííííííí.........
nóg um það í bili læt ykkur vita ef að eitthvað markvert gerist til viðbótar
verið stillt og góð og ekki drekka of stíft yfir kostninga sjónvarpinu, love, xxx
langar þig að eiga börn???
Það eru margir sem halda að fyrstu mánuðirnir séu svona svolítið bindandi,
eða jafnvel fyrstu árin en svo verði þetta nú allt í lagi svona þegar búið er að ná lagni við klósett almennann mat og svo framvegis.
Hahh, hugsaðu nú aðeins lengra, ég er bundnari núna yfir
börnunum mínum en ég var fyrir 10 árum.
Ég þarf sífellt að vera á vaktini og stöðugt að sækja ungling með
"rafmagnslausan síma" eða sem "óvart" missir af strætó, "alveg óvart"
þó að strætó sé NB alltaf á sama tíma !!!!
Hafið a.m.k. í huga að ef að þið viljið eiga börn þá er það eitthvað sem að
þið þurfið að hafa í forgangi í a.m.k. 18 ár og þá þíðir lítið að ætla að plana
eitthvað því að unglingurinn er óútreiknanlegur, vægast sagt.
Ég fékk ekki einu sinni að sjá Eirík Hauks á sviðinu í Helsingi.
Það má segja að það sé eins gott að hann komist áfram þó
ekki væri nema bara til að ég fái að sjá hann !!!!
nóg um það hugsið ykkur vel um, lov'ya, xxx
GLEÐILEGT SUMAR :)
og takk fyrir veturinn
Thank you all for the winther
have a nice summer
veturinn búin :)
einn enn búin, rysjótt veður,myrkur,
kuldi,skóli,innivera og rafmagnsljós.
við tekur hið ljúfa, hlýja smuar með
birtu og yl, útiveru og blómum,
laufguðum runnum og trjám,
fuglasöng og krakka skvaldri,
kúm í haga og fé á fjalli.
ýmsum breytingum góðum, slæmum
sumum erfiðum öðrum auðveldum
sumum fylgir eftirsjá, öðrum léttir
sumar koma á óvart, öðrum er búið að bíða eftir
sumum með óþreyju, öðrum með þolinmæði
hvað sem því líður er nýtt sumar að ganga í garð
með öllum þess væntingum sem nýtt upphaf býður uppá
svo að nýtið ykkur þessi annars hálf hversdagslegu
tímamót og takið ykkur á, látið verða af eða hættið við
bara það sem við á
nú fögnum við sumri og
vonum að hann frysti í nótt
til hamingju elskurnar mínar með að klára
þennan vetur með sæmd, kv xxx